Heimir Guðjónsson þjálfari FH var ánægður með stigin þrjú sem liðið fékk eftir 2-1 sigur á Keflavík suður með sjó.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 2 FH
„Mér fannst þessi spilamennska eiga skilið þrjú stig. Við sýndum þolinmæði og vissum að þetta yrði erfiður leikur. Keflavík tapaði illa síðast og við vissum að þeir myndu snúa bökum saman," sagði Heimir.
„Þeir voru vel skipulagðir og okkur gekk erfiðlega að opna þá. Við skorum hinsvegar tvö mörk og kláruðum leikinn."
„Þegar við náðum að setja smá tempó í leik okkar og náðum að flytja boltann á milli vængja þá náðum við ágætisfloti."
Atli Viðar kom inná á 65. mínútu og skoraði sigurmark FH innan við tíu mínútum seinna.
„Atli Viðar er alltaf að setja pressu á mig og það er líka bara jákvætt. Atli Viðar var veikur og komst ekki með til Aserbaijdan en hann er að skríða til baka."
Það vantaði nokkra lykilmenn hjá FH liðinu í kvöld. Heimir segir að það sé stutt í flesta leikmennina.
„Kassim verður klár í næsta leik á móti Val. Lennon og Brynjar Ásgeir líklega líka. Það er lengra í Guðmann og Hewsson spilar ekkert fyrr en í september."
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir