„Ég held það séu allir á Eyjunni sammála um það að þetta hafi verið geggjað," sagði Hafsteinn Briem eftir 1-0 sigur ÍBV á FH í undanúrslitum Borgunarbikarsins.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 FH
„Við byrjuðum leikinn ekkert spes en svo vorum við gríðarlega þéttir og beittum skyndisóknum. Mér leið inni á vellinum eins og við vildum þetta meira og við fengum líka frábæran stuðning," sagði Hafsteinn.
ÍBV mætir Val í úrslitalieknum þann 13. ágúst.
„Það verður 50/50 leikur, þeir eru auðvitað með rándýran hóp og flott lið, þetta verður hörkuleikur og ég hlakka bara til." sagði Hafsteinn að lokum.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir