„Þetta eru vonbrigði en ÍBV áttu sigurinn skilið, þeir lögðu meira í þetta og vildu þetta meira" sagði Heimir Guðjónsson eftir svekkjandi 1-0 tap í Eyjum í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 FH
„Við vorum hægir og sendingar ekki góðar. Við vorum bara undir í þessum leik og ég verð að hrósa Bjarna Jó fyrir gott skipulag á sínu liði," sagði Heimir.
FH datt nýlega út úr Meistaradeildinni og nú úr bikarnum en Heimir hefur ekki miklar áhyggjur af því.
„Ég hef verið hérna í níu ár og ég held að það hafi aldrei verið krísa og það er það varla núna," sagði Heimir.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir