Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 28. júlí 2016 00:00
Ívan Guðjón Baldursson
Óli Stefán: Sjaldan upplifað annað eins
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Toppbaráttulið Grindavíkur gerði 2-2 jafntefli við fallbaráttulið Hugins í kvöld en gestirnir frá Seyðisfirði voru með forystuna í rúma klukkustund og kom jöfnunarmark Grindvíkinga ekki fyrr en á lokasekúndum uppbótartímans.

Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur, var sáttur með stigið að leikslokum, sérstaklega í ljósi þess að hin toppbaráttuliðin töpuðu sínum leikjum.

„Við gerðum þetta eitthvað svo ótrúlega erfitt fyrir okkur. Þessi dagur er bara, frestunin og allt við þetta var bara svo skrítið að ég hef sjaldan upplifað annað eins. Sem betur fer náðum við þessu stigi á endanum," sagði Óli Stefán að leikslokum.

„Við erum ekki ennþá búnir að tapa hérna heima og eins og ég segi þá verð ég að fagna þessu stigi, úr því sem komið var."

Grindvíkingar áttu rúmlega 30 skot í leiknum og segist Óli Stefán sjaldan hafa upplifað jafn furðulegan leik.

„Mér fannst leikurinn svo skrítinn. Við spiluðum vel og vorum alltaf að sækja en svo kemur mjög ódýr aukaspyrna, þeir refsa og svo missum við boltann og þeir negla honum upp í skeytin. Við höldum áfram að sækja, komumst í gegn, fáum víti og ég veit ekki hvað og hvað, ég hef sjaldan upplifað svona leik, þetta var með ólíkindum."
Athugasemdir
banner
banner
banner