Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 28. júlí 2016 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Szczesny á leið til Roma
Mynd: Getty Images
Wojciech Szczesny, pólskur markvörður Arsenal, er á leið til Roma á láni annað tímabilið í röð.

Szczesny er 26 ára gamall og lék 34 deildarleiki fyrir Roma á síðasta tímabili. Markvörðurinn þótti standa sig vel er Roma endaði í þriðja sæti deildarinnar.

Sky greinir frá þessu og segir að sérstakt ákvæði fylgi lánssamningnum sem gerir Roma kleift að kaupa markvörðinn fyrir 13 milljónir punda næsta sumar.

Roma þarf að greiða rétt tæpar 2 milljónir punda til að fá Szczesny á láni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner