Líkurnar á að Neymar fari frá Barcelona til PSG í sumar virðast vera að aukast.
Orðrómur hefur verið um að Neymar fari til PSG á 195 milljónir punda og verði um leið langdýrasti leikmaður sögunnar.
Neymar lenti í rifrildi við Nelson Semedo á æfingu Barcelona í Bandaríkjunum í dag.
Rifrildið endaði á því að Neymar fór úr vestinu sem hann var í og labbaði burt af æfingunni.
Lið Barcelona snýr aftur til Spánar um helgina en á sama tíma átti Neymar að fara til Kína til að sinna auglýsingamálum.
Fréttir frá Kína segja nú að Neymar hafi hætt við ferð sína þangað vegna yfirvofandi félagaskipta til PSG. Möguleiki er því á að félagaskiptin til PSG gangi í gegn á næstu dögum.
Hér að neðan má sjá Neymar rjúka af æfingu í morgun.

Neymar getting bullied out of Barcelona 😱 pic.twitter.com/QiMd2rUGge
— 👑Bakayoko (@KingBakayoko) July 28, 2017
Athugasemdir