Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 28. ágúst 2014 14:38
Magnús Már Einarsson
Di Maria: Ætla að hjálpa Manchester United í Meistaradeildina
Di Maria og Louis van Gaal.
Di Maria og Louis van Gaal.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria var kynntur til sögunnar sem nýr leikmaður Manchester United á fréttamannafundi í dag.

Di Maria mun fá treyju númer 7 hjá Mancheser United en hann segist vera ánægður með að vera kominn til félagsins.

,,Manchester United hefur unnið marga titla og þetta er mjög stórt félag," sagði Di Maria.

,,Ég kem til að hjálpa liðinu og bæta leik þess. Ég vil að þetta verði stórlið á nýjan leik og ég vil vinna marga titla."

,,Ég er mjög ánægður að spila með Manchester United. Ég kann vel við liðið og vildi koma hingað, jafnvel þó að það sé ekki í Meistaradeildinni."

,,Ég vil hjálpa liðinu að komast í Meistaradeildina. Ég er ánægður með stjórann að velja mig til að koma til Manchester United."

Athugasemdir
banner
banner