Það gæti orðið fjör í Kórnum í kvöld þó Justin Timberlake verði ekki sjáanlegur. HK mætir Grindavík í 1. deildinni og hefst leikurinn klukkan 19:15. Hann verður sýndur beint á Fótbolta.net í samstarfi við SportTv.is.
HK getur með sigri smellt sér í þriðja sæti deildarinnar, í sólarhring allavega, en liðið heldur enn í vonina um að komast upp þó veik sé. Grindavík er fimm stigum fyrir ofan fallsæti eftir vonbrigðasumar.
Í 2. deildinni geta Njarðvík, Afturelding og Reynir Sandgerði náð sér í mikilvæg stig í fallbaráttunni.
1. deild karla 2014
19:15 HK-Grindavík (Kórinn)
2. deild karla 2014
18:30 Njarðvík-Afturelding (Njarðtaksvöllurinn)
18:30 ÍR-Reynir S. (Hertz völlurinn)
4. deild karla B-riðill
20:00 Ísbjörninn-Stál-úlfur (Fagrilundur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir