Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 28. ágúst 2014 00:10
Elvar Geir Magnússon
Real Madrid, Dortmund, Liverpool og Roma
Mögulegur riðill í Meistaradeild Evrópu
Real Madrid er ríkjandi Evrópumeistari.
Real Madrid er ríkjandi Evrópumeistari.
Mynd: Getty Images
Dregið verður í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á fimmtudag (28. ágúst) og hefst athöfnin klukkan 15:45 að íslenskum tíma. Fylgst verður vel með drættinum hér á Fótbolta.net.

Fyrirsögnin vísar í mögulegan dauðariðil í keppninni en eins og venjulega er liðunum skipt upp í fjóra styrkleikaflokka og verður eitt úr hverjum flokki í hverjum riðli

Annar mögulegur dauðariðill yrði Bayern München, Athletic Bilbao, Manchester City og Roma. En þessar vangaveltur eru þó allar aðeins til gamans gerðar.

Pottur 1:
Real Madrid, Barcelona, Bayern München, Chelsea, Benfica, Atletico Madrid, Arsenal, Porto

Pottur 2:
Schalke 04, Borussia Dortmund, Juventus, PSG, Shakhtar Donetsk, Basel, Zenit, Manchester City

Pottur 3:
Bayer Leverkusen, Olympiakos, CSKA Moskva, Ajax, Liverpool, Sporting Lissabon, Galatasaray, Athletic Bilbao

Pottur 4:
Anderlecht, Roma, Ludogorets, APOEL, BATE Borisov, Maribor, Monaco, Malmö
Athugasemdir
banner
banner