Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. ágúst 2014 12:30
Magnús Már Einarsson
Roy Hodgson: Colback gæti orðið rauðhærður Pirlo
Rauðhærður Pirlo?
Rauðhærður Pirlo?
Mynd: Getty Images
Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, hefur miklar mætur á Jack Colback miðjumanni Newcastle.

Colback er einn af fjórum nýliðum í enska landsliðshópnum fyrir komandi leiki gegn Noregi og Sviss.

,,Ég talaði við aðila sem þekkir hann vel og hann kallaði hann rauðhærðan Pirlo. Það væri flott ef hann yrði það í framtíðinni," sagði Hodgson um Colback.

,,Ég hreifst af honum á síðasta tímabili og hann hefur mjög mikið fram að færa. Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður."

,,Við misstum allt í einu Steven Gerrard, Frank Lampard og Michael Carrick. Jack spilar í stöðu þar sem óvænt tækifæri geta gefist og við sjáum hvernig þetta fer."

Athugasemdir
banner
banner
banner