Wilfried Zaha, kantmaður Manchester United, hefur verið lánaður til Crystal Palace.
Zaha gerði garðinn frægan á kantinum hjá Palace og var keyptur til Manchester United á 15 milljónir punda fyrir einu og hálfu ári.
Zaha gerði garðinn frægan á kantinum hjá Palace og var keyptur til Manchester United á 15 milljónir punda fyrir einu og hálfu ári.
Honum hefur ekki tekist að brjótast inn í byrjunarlið Rauðu djöflanna og var lánaður til Cardiff síðasta vor.
,,Ég er ánægður með að fá spilatíma. Þetta er besti staðurinn sem ég gat komið á, hér er ég elskaður," sagði Zaha sem gerði frábæra hluti sem leikmaður Palace.
Athugasemdir