Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. ágúst 2015 19:53
Arnar Geir Halldórsson
2. deild: Afturelding rúllaði yfir toppliðið
Elvar Freyr kom Aftureldingu á bragðið í kvöld
Elvar Freyr kom Aftureldingu á bragðið í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 1 - 4 Afturelding
0-1 Elvar Freyr Arnþórsson (´17)
0-2 Wentzel Steinarr Kamban (´24)
0-3 Kristinn Jens Bjartmarsson (´41)
0-4 Alexander Aron Davorsson (´88)
1-4 Styrmir Erlendsson ('90)

Einn leikur fór fram í 2.deildinni í kvöld þar sem topplið ÍR fékk Aftureldingu í heimsókn á Hertz völlinn.

ÍR-ingar eru í harðri baráttu við Leikni F. og Huginn um sæti í 1.deild að ári en þeir fóru heldur betur illa að ráði sínu gegn Mosfellingum í kvöld.

Elvar Freyr Arnþórsson kom gestunum yfir eftir sautján mínútna leik. Í kjölfarið gengu þeir á lagið og leiddu 3-0 í hálfleik.

Alexander Aron Davorsson skoraði svo fjórða mark Aftureldingar áður en Styrmir Erlendsson klóraði í bakkann fyrir ÍR.

Huginn og Leiknir geta því komist uppfyrir ÍR á morgun, takist þeim að sigra sína leiki en Huginn fær Njarðvík í heimsókn á meðan Fáskrúðsfirðingar sækja KV heim.

Markaskorarar af Úrslit.net.
Athugasemdir
banner
banner
banner