Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 28. ágúst 2015 13:36
Magnús Már Einarsson
Ari sá eini með tvö gul spjöld
Icelandair
Ari Freyr Skúlason.
Ari Freyr Skúlason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ari Freyr Skúlason er sá eini sem er einu gulu spjaldi frá leikbanni fyrir leikinn gegn Hollandi í undankeppni EM á fimmtudag.

Ari er kominn með tvö gul spjöld í undankeppninni en þrju gul spjöld þýða leibann.

Gylfi Þór Sigurðsson, Kolbeinn Sigþórsson, Ragnar Sigurðsson, Rúrik Gíslason og Theódór Elmar Bjarnason eru allir á einu spjaldi þegar fjórir leikir eru eftir í riðlinum.

Lars Lagerback var ósáttur við mikinn spjaldafjölda hjá Íslandi í undankeppni HM 2014 og hann hrósaði leikmönnum mikið fyrir bætingu á því sviði á fréttamannafundi í dag.

Lars sýndi einnig dæmi af góðu hugarfari hjá Gylfa Þór Sigurðssyni þegar dómur féll honum ekki í hag í leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner