„Mér fannst leikurinn í fyrra vera hörkuleikur. 4-0 gaf ekki rétta mynd af þeim leik. Það var hörkuleikur og gefur okkur ekkert í leiknum á laugardaginn," segir Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fyrirliði Stjörnunnar um bikarúrslitaleikinn gegn Selfyssingum á morgun.
Stjarnan sigraði Selfoss 4-0 í bikarúrslitum í fyrra en Ásgerður býst við jafnari leik á morgun.
Stjarnan sigraði Selfoss 4-0 í bikarúrslitum í fyrra en Ásgerður býst við jafnari leik á morgun.
„Selfoss er með skemmtilegt lið og það er skemmtilegt að spila á móti þeim. Þetta eru naglar og passion leikmenn sem ég mæti á miðjunni og þetta verður hörkuleikur."
Stemningin er að aukast í Garðabænum fyrir leikinn á Laugardalsvelli klukkan 16.00 á morgun.
„Við fórum í grunnskólana í morgun og vorum að syngja Silfurskeiðarlög með krökkunum. Þau kunna öll lögin en við þurfum að kenna þeim lög um okkur. Þau voru að syngja um Dóra og Garðar en við þurfum að færa þetta yfir á okkur. 4. flokkur kvenna er búinn að semja lög og ég bíð spennt eftir að heyra þau."
Ásgerður segir að undirbúningurinn sé nokkuð hefðbundinn fyrir leikinn á morgun.
„Það er sami undirbúningur. Við förum saman á Saffran og þetta er hefðbundinn undirbúningur," sagði Ásgerður sem fær sér Piri Piri kjúkling á Saffran.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir