Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. ágúst 2015 23:00
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Atletico Madrid 
Kranevitter til Atletico Madrid (Staðfest)
Matias Kranevitter
Matias Kranevitter
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid hefur gengið frá kaupum á argentíska miðjumanninum Matias Kranevitter frá River Plate.

Kranevitter mun þó ekki færa sig um set fyrr en um áramót þar sem hann mun leika með River Plate í Heimsmeistarakeppni félagsliða sem fram fer í desember.

Hann gerir fimm ára samning við Atletico Madrid og er kaupverðið 8 milljónir evra.

Kranevitter er 22 ára varnarsinnaður miðjumaður og var valinn í landsliðshóp Argentínu á dögunum en hann á enn eftir að leika sinn fyrsta A-landsleik.
Athugasemdir
banner