Fótboltatölvuleikurinn Kickoff CM er kominn út og því var fagnað á Laugardalsvelli í gær.
Það er íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Digon Games sem gefur leikinn út en leikurinn er aðgengilegur á kickoff.is.
Landsliðsþjálfararnir Lars Lagerback og Heimir Hallgrímsson voru meðal gesta í Laugardalnum í gær.
Ljósmyndarinn Ómar Vilhelmsson mætti á svæðið og smellti af nokkrum myndum auk þess að fá sér léttar veitingar.
Athugasemdir