banner
   fös 28. ágúst 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Tómas Ingi til starfa hjá Fylki
Frá undirritun samninga.
Frá undirritun samninga.
Mynd: Fylkir
Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðs karla, hefur verið ráðinn yfirþjálfari yngri flokka karla hjá Fylki.

Jakob Léó Bjarnason hefur verið ráðinn yfirþjálfari hjá yngri flokkum kvenna hjá Fylki.

„Það er mikil ánægja að fá þennan frábæra liðsstyrk inn í það metnaðarfulla starf sem fyrir er í Árbænum," segir í tilkynningu frá Fylki.

„Ráðning þessara tveggja aðila er liður í því að styrkja enn frekar þá góðu uppbyggingu sem verið hefur á undanförnum árum."

„Stefnt er að því að gera alla þjálfun markvissari og metnaðarfyllri og einnig að leggja enn frekari áherslu á afreksþjálfun drengja og stúlkna. Þetta er gert til að framfylgja þeirri góðu stefnu sem sett hefur verið."

Athugasemdir
banner
banner