Úlfur Arnar Jökulsson þjálfari Aftureldingar var sáttur í leikslok, eftir öruggan 4-1 sigur á ÍR:
"Ég er gríðarlega sáttur. Þetta þriðja mark drepur leikinn endanlega og í seinni hálfleik var þetta bara spurning um að halda sjó og sýna faglega frammistöðu sem við gerðum mjög vel."
ÍR-ingar vildu vítaspyrnu í upphafi leiks en Úlfur var á því að það var ekki víti:
"Mér fannst þetta ekki vera víti, hann fer frekar auðveldlega niður."

Aðspurður út í gengi sumarsins sagði Úlfur:
"Tímabilið er ekki búið að vera vonbrigði. Við höfum ekki verið að uppskera stig samanber frammistöðu í sumar. Við erum búnir að eiga gríðarlega góða leiki sem við höfum ekki verið að fá mikið út úr. Við erum í uppbyggingu og þetta er fyrsta skrefið í því."
"Það er ekki erfitt að mótivera menn. Þetta er svo gaman, við mótiverum okkur í alla leiki."
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir