sun 28. ágúst 2016 08:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Fellaini meiddur á baki - Verður frá í einhvern tíma
Fellaini er hissa
Fellaini er hissa
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini, leikmaður Manchester United verður frá í einhvern tíma en hann meiddist á baki í leiknum gegn Hull í gær.

Fellaini kláraði þó leikinn en sjúkralið United komst að því eftir leik að hann var meiddur.

„Ég mun vera á Fellaini í einhvern tíma. Hann meiddist á vöðva í baki og það lítur ekki vel út," sagði Mourinho.

„Ég veit ekki hvað hann verður lengi frá en þetta lítur illa út."

Fellaini hefur litið vel út síðan Mourinho tók við United og hefur hann spilað alla leikina hingað til.
Athugasemdir
banner
banner
banner