„Þetta er fyrsta markið í sumar og það er alltaf gott að skora," sagði Ingimundur Níels Óskarsson eftir 1-1 jafntefli Fjölnis og Fylkis í kvöld.
Ingimundur jafnaði á lokasekúndu leiksins gegn sínum gömlu félögum en hann kom í Fjölni frá Fylki í júlí.
„Þeir þurftu virkilega á stigunum að halda í stöðunni sem þeir eru í. Það er ljótt að gera gömlum félögum óleik en við erum sjálfir í baráttu og það þýðir ekki að vorkenna þeim."

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 1 Fylkir
Fjölnismenn eru í harðri baráttu um Evrópusæti en Ingimundur var ekki ánægður með spilamennskuna í dag.
„Þetta var ekki alveg nógu góður leikur. Við fengum einhver færi en ég held að menn séu ekki sáttir með þennan leik."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir