Milos Milojevic, þjálfari Víkings R., reyndi að vera jákvæður eftir 2-0 tap gegn ÍA á Akranesi í kvöld.
Víkingar eru nú fjórum stigum og fimm sætum frá Evrópubaráttunni þegar fimm umferðir eru eftir af tímabilinu.
Víkingar eru nú fjórum stigum og fimm sætum frá Evrópubaráttunni þegar fimm umferðir eru eftir af tímabilinu.
„Ef ég á að vera jákvæður þá er þetta betra en að tapa 7-0 eins og í síðasta útileik," sagði Milos að leikslokum.
„Þetta var kaflaskiptur leikur og við virtumst við ekki vera búnir að gera heimavinnuna. Við pössum ekki Garðar og pössum ekki bolta númer tvö sem er þeirra styrkleiki. Þegar þú gerir ekki heimavinnu þá færðu ekki neitt úr leiknum."
Víkingur gat blandað sér almennilega í Evrópubaráttuna með sigri en Milos telur félagið enn eiga möguleika á Evrópusæti.
„Ég myndi ekki segja að sumarið sé búið því það eru fimmtán stig eftir í pottinum. Ég er ekkert að gefast upp þegar fimmtán stig eru í pottinum þó þetta sé kannski langsótt miðað við okkar frammistöðu í dag."
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir