sun 28. ágúst 2016 15:10
Jóhann Ingi Hafþórsson
Svíþjóð: Þrír íslendingar spiluðu í jafntefli
Birkir Már spilaði allan leikinn í dag.
Birkir Már spilaði allan leikinn í dag.
Mynd: Getty Images
AIK 0 - 0 Hammarby

AIK og Hammarby mættust í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Leikurinn var markalaus en þrír Íslendingar spiluðu allan leikinn fyrir Hammarby.

Þeir Arnór Smárason, Birkir Már Sævarsson og Ögmundur Kristjánsson byrjuðu allir leikinn og léku til enda.

AIK er í 3. sæti með 27 stig en Hammarby í 9. sæti með 25 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner