Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis, var ánægður með 2-1 sigur sinna manna gegn gömlu félögunum í Fjölni í Pepsi-deildinni í dag.
„Ég hefði viljað skora fleiri mörk, við fengum tækifæri til þess að skora meira og maður hefði verið rólegri síðustu mínúturnar ef eitthvað af því hefði farið inn. Það mátti lítið út af bera en ég er sáttur með spilamennskuna,“ sagði Ásmundur við Fótbolta.net.
„Við höfum verið undir pressu að þurfa að bjarga okkur og staðið undir henni, og nú settum við á okkur pressu að klára þennan leik til að hafa skemmtilega lokaumferð.“
Ásmundur þvertekur fyrir að það hafi hjálpað Fylkismönnum eitthvað sérstaklega á tímabilinu að fá sjö heimaleiki í röð.
„Þessi umræða er náttúrulega búin að vera algerlega út í hött, þvílíka steypan, að „fá sjö heimaleiki“ eða „lenda í því að fá sjö heimaleiki“, það er ekki þannig. Við lentum í því að vellirnir voru ekki tilbúnir í byrjun móts. Við áttum leiki gegn ÍBV og Þór í byrjun móts þar sem vellirnir voru klárir, og við þurftum ekkert fleiri leiki á gervigrasið í Laugardal. Þannig að við skiptum við þá um heimaleiki og spiluðum á flottum velli hjá þeim, þar sem þeir voru tilbúnir en ekki hér. Og af því að mótið var þannig að við áttum tvo útileiki í byrjun, þá endar þetta í að við spilum sex útileiki í byrjun móts en um miðbik fáum við sjö leiki í röð. Það eru vallaraðstæður sem réðu þessu, en ekki að við höfum lent í þessu,“ sagði Ásmundur.
Athugasemdir