„Þessi leikur var svipaður og síðustu 10 leikir nema við skoruðum þessi mörk í dag en ekki hitt liðið. Sagði Sveinn Elías Jónsson eftir 2-0 sigur á Breiðabliki í dag. En þetta var fyrsti sigur liðsins síðan í 10.umferð.“
Lestu um leikinn: Þór 2 - 0 Breiðablik
Byjunarlið Þórs var al-norðlenskt í dag og Sveinn hafði þetta að segja um liðið: „Ég var mjög hlynntur þessu og gaman að sjá fleiri Þórsara í liðinu og þeir nýttu tækifærið sitt í dag. Mér fannst sérstaklega gaman að sjá Kristinn Rósbergsson og Hjörtur hélt hreinu. Þannig að það var mjög gaman að því.“
„Það er ekki margt sem stendur uppúr, en bara ótrúlega mikið stöngin út tímabil og margir leikir sem hafa ekki fallið með okkur. En hver er sinnar gæfu smiður og ég held að við höfum verið það líka, þetta bara gekk ekki upp hjá okkur í sumar.“
Sveinn Elías sagðist einnig reikna með því að vera áfram í herbúðum Þórs á næsta ári.
Nánar er rætt við svein í sjónvarpinu hér fyrir ofan.
Athugasemdir