Arsenal leikur í gulum varabúningi sínum gegn Basel þegar liðin mætast á Emirates leikvanginum í Meistaradeildinni í kvöld.
Arsenal leikur vanalega í rauðum og hvítum treyjum og hvítum stuttbuxum.
Birkir Bjarnason og félagar í Basel leika í rauðum, bláum og svörtum búningi sem þykir of líkur aðalbúningi Arsenal.
Varabúningur Basel er hvítur og hann þykir einnig of líkur aðalbúningi Arsenal.
Þar sem Basel á ekki þriðja búning þá þarf Arsenal að sætta sig við að leika í varabúningi á heimavelli í kvöld.
Athugasemdir