Alex Iwobi er búinn að byrja þessa leiktíð mjög vel með Arsenal en hann segir félagið hafa ætlað að losa sig við sig er hann var í unglingaliði þeirra.
Iwobi kom til Arsenal þegar hann var níu ára en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í október á síðasta ári í 3-0 tapi gegn Sheffield Wednesday í deildabikarnum.
Síðan þá er hann orðinn mikilvægur hlekkur í Arsenal liðinu og hefur hann lagt upp flest mörk liðsins, ásamt Alexis Sanchez.
„Arsenal losaði sig næstum við mig þegar ég var 14 ára og svo aftur þegar ég var 16 ára en ég var heppinn að fá samning eftir það."
„Þetta var stressandi þegar ég var 14 ára en sem betur fer fór þetta allt vel," sagði Iwobi.
Athugasemdir