Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður framlengdur í dag laugardag vegna lokaumferðar Pepsi-deildarinnar. Þátturinn verður tveggja tíma lengri en venjan er, milli 12 og 16.
Fylgst verður með gangi mála á X-inu þar til flautað verður til leiksloka og úrslit ráðast.
Þátturinn hefst klukkan 12 þar sem hitað verður upp fyrir umferðina á stórskemmtilegan hátt, Inkasso-deildin gerð upp og fjallað um enska boltann.
Klukkan 14 verður flautað til leiks í öllum leikjum lokaumferðarinnar. Spenna er í baráttunni um Evrópusæti og að forðast fall. Við heyrum í okkar mönnum á völlunum.
Umsjónarmenn útsendingarinnar eru Tómas Þór og Elvar Geir Auk þeirra verða Tryggvi Guðmunds, Tómas Meyer, Magnús Már og fleiri fréttamenn á vettvangi.
Leikir lokaumferðarinnar: Þróttur - Víkingur R., KR - Fylkir, FH - ÍBV, Valur - ÍA, Stjarnan - Víkingur Ó, Breiðablik - Fjölnir.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður á laugardag 12-16. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á Twitter undir @tomthordarson og @elvargeir..
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir