Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 28. september 2016 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Navas: Ég gerði mistök í fyrsta marki Dortmund
Mynd: Getty Images
Keylor Navas viðurkennir að hann hafi gert mistök í fyrsta marki Borussia Dortmund gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í gær.

Navas kýldi boltann í Raphael Värane og var boltinn rétt ókominn yfir marklínuna þegar Pierre-Emerick Aubameyang potaði honum inn og fékk markið skráð á sig.

„Það er augljóst að ég gerði mistök í fyrsta markinu. Ég tók ranga ákvörðun og það varð til þess að andstæðingarnir skoruðu," sagði Navas eftir leik.

„Mér leið vel í leiknum þrátt fyrir alla mánuðina sem ég hef misst af vegna meiðsla. Ég er búinn að ná mér fullkomlega og þakka guði fyrir að gera mér kleift að snúa aftur og hjálpa liðsfélögunum.

„Við hefðum viljað vinna þennan leik en jafntefli eru ekki slæm úrslit hérna."

Athugasemdir
banner
banner
banner