Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 28. september 2016 13:00
Magnús Már Einarsson
Óvíst hvort Rooney spili á morgun - Zlatan með
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.
Mynd: Getty Images
Óvíst er hvort Wayne Rooney verði með Manchester United gegn Zorya í Evrópudeildinni annað kvöld.

Rooney var bekkjaður í sigri Manchester United á Leicester um helgina. Fyrirliðinn er núna meiddur í baki og óvíst er með þátttöku hans á morgun.

„Ég vil vernda hann. Ef hann er ekki algjörlega klár þá mun hann ekki byrja," sagði Mourinho.

Mourinho staðfesti hins vegar að Zlatan Ibrahimovic verði í byrjunarliðinu. Zlatan sást á Ítalíu í gær og reiknað var með að hann fengi frí í leiknum á morgun. Svo verður þó ekki.

Hvað er Zorya? FC Zorya Luhansk er lið frá austurhluta Úkraínu en liðið varð bikarmeistari í heimalandinu á síðasta tímabili. Það situr í öðru sæti úkraínsku úrvalsdeildarinnar, fimm stigum á eftir toppliði Shakhtar Donetsk.
Athugasemdir
banner
banner