Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mið 28. september 2016 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Zidane: Erfitt að sætta sig við jafnteflið
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane segir hann eiga erfitt með að sætta sig við 2-2 jafntefli Real Madrid gegn Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í gær.

Cristiano Ronaldo og Raphael Varane komu Real Madrid tvisvar sinnum yfir í leiknum en heimamönnum, sem fengu talsvert fleiri færi en gestirnir, tókst alltaf að jafna.

„Strákarnir spiluðu mjög vel og það er erfitt að sætta sig við jafnteflið því við áttum meira skilið," sagði Zidane eftir leik.

„Þetta eru þó ekki slæm úrslit, en svekkjandi. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur og ég er stoltur af frammistöðunni.

„Það er mjög sárt að fá jöfnunarmark á sig þremur mínútum fyrir leikslok, sérstaklega í þessum leik."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner