Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 28. október 2014 17:59
Elvar Geir Magnússon
Bjarni Guðjóns: KR verður með hörkulið næsta vor
Mynd: Fótbolti.net - Mate Dalmay
„Þetta er frábært tækifæri og ég er ákaflega stoltur af því að fá það. Saman vitum við Gummi að þetta verkefni á eftir að vera erfitt en þetta verður jafnframt gaman," segir Bjarni Guðjónsson sem hefur verið ráðinn þjálfari KR.

Aðstoðarmaður hans verður Guðmundur Benediktsson.

„Guðmundur er hörkuþjálfari sem er kominn með mikla reynslu. Hann les leikinn betur en flestir aðrir."

„Það er krafa í KR að það náist árangur og það er engin launung með það. Næsta tímabil verður ekkert öðruvísi, það verður krafa að ná árangri."

Bjarni stýrði Fram á liðnu tímabili en liðið féll úr Pepsi-deildinni á fyrsta ári Bjarna sem þjálfari.

„Ég tek með mér mikla reynslu úr því verkefni. Verkefnin eru ótakmörkuð og nánast allt kemur upp á borð þjálfarans sem enginn annar veit um."

„Eitt er ljóst. KR verður með hörkulið næsta sumar," segir Bjarni aðspurður um leikmannamálin þar sem nokkur spurningamerki eru.

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner