Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   þri 28. október 2014 17:54
Elvar Geir Magnússon
Gummi Ben: Bjarni er fæddur í þetta
Mynd: Fótbolti.net - Mate Dalmay
,,Ég er gríðarlega ánægður og hlakka til að takast á við þetta verkefni," sagði Guðmundur Benediktsson við Fótbolta.net í dag eftir að hann var ráðinn aðstoðarþjálfari KR.

,,Hér hefur og verður alltaf allt til alls til að vera með alvöru lið. Við munum að sjálfsögðu reyna að halda áfram þeirri frábæru vinnu sem Pétur og Rúnar hafa unnið síðustu ár."

Bjarni Guðjónsson verður þjálfari KR og Guðmundur er spenntur fyrir því að vinna með honum.

,,Bjarni er fæddur í þetta, hann er af því kyni. Þetta er aðeins í genunum. Þetta verður virkilega gaman og það á að vera gaman á KR-vellinum. Við ætlum að vera með þannig lið að það verði gríðarlega gaman að mæta á KR-völlinn næsta sumar. Það er stefnt á að vinna titla í Vesturbænum og við munum vera með lið til þess."

Allir aðilar í þjálfarateyminu starfa að hluta fyrir Stöð 2 Sport og Kristinn Kjærnested formaður knattspyrnudeildar lýsir einnig leikjum á stöðinni. Verður Stöð 2 Sport framan á búningum KR næsta sumar?

,,Það er verið að vinna í því. Við erum með fínan samning við Alvogen og þetta verður skoðað í framhaldinu," grínaðist Guðmundur.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner