„Við teljum að við séum með tríó sem komi til með að lyfta KR hærra," segir Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR. Nýtt þjálfarateymi liðsins var kynnt í dag.
Bjarni Guðjónsson er nýr aðalþjálfari með Guðmund Benediktsson sem aðstoðarþjálfara en þá verður Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari 2. flokks og aðstoðar þá Bjarna og Guðmund með meistaraflokkinn.
Bjarni Guðjónsson er nýr aðalþjálfari með Guðmund Benediktsson sem aðstoðarþjálfara en þá verður Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari 2. flokks og aðstoðar þá Bjarna og Guðmund með meistaraflokkinn.
Kristinn segir að Bjarni hafi verið fyrsti kostur en ekki hafi truflað þá að Bjarni hafi fallið með Fram á sínu fyrsta ári sem þjálfari.
„Það er ekki hægt að svara þessari spurningu öðruvísi en að við erum KR og þeir eru Fram. Við stöndum fyrir það sem við erum hjá KR. Við teljum að öflug umgjörð og þéttur hópur manna sem vinnur í kringum meistaraflokkinn komi til með að skila því að þeir nái góðu starfi. Það skiptir öllu máli."
„Bjarni hefur fullt af góðum kostum og við söknuðum hans á liðnu sumri, ekki bara á vellinum heldur einnig nærveru hans og leiðtogahæfileika. Þetta er góður dagur fyrir KR."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir