Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   mið 28. október 2015 13:52
Magnús Már Einarsson
Gunnar Nielsen: Þetta er ekkert persónulegt
Gunnar Nielsen.
Gunnar Nielsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„FH er líklega mesta atvinnumannafélagið á Íslandi," sagði færeyski landsliðsmarkvörðurinn Gunnar Nielsen eftir að hann skrifaði undir þriggja ára samning við FH í dag.

„FH er að berjast um titla á hverju tímabili, liðið vill ná langt í Evrópu og þetta var allt of gott til að hægt væri að hafna því."

Gunnar tjáði Stjörnunni um síðustu helgi að hann yrði ekki áfram í Garðabænum en ræddi hann við önnur íslensk félög?

„Ég vil ekki tjá mig um það. Ég var með aðra möguleika en ég vil ekki segja til um hvort það var erlendis eða á Íslandi. Ég ákvað að vera áfram á Íslandi en um leið og FH bauð mér samning var ég spenntur og ég er ánægður með að vera hér."

Gunnar segir að það hafi verið erfitt að fara frá Stjörnunni eftir að hafa varið markið í Garðabænum í sumar.

„Ég talaði við Rúnar Pál (Sigmundsson) og Fjalar (Þorgeirsson) markmannsþjálfara. Þetta er ekkert persónulegt. Ég átti góðan tíma í Stjörnunni og hef einungis góða sögu að segja um félagið. Fótbolti er fótbolti. Sumir taka hlutum persónulega í fótbolta en þetta er ekkert persónulegt af minni hálfu. Ég fékk gott tilboð fótboltalega séð og ég er ánægður með að vera hér."

Gunnar býr ásamt fjölskyldu sinni á Íslandi og kann vel við sig en hann er íslenskur í aðra ættina. „Ég hef átt heima í Englandi og Skotlandi sem er öðruvísi. Það er heimilislegra á Ísland," sagði Gunnar sem er nánast búinn að ná tökum á íslenskunni.

„Ég get líka talað íslensku en það er erfitt að tala hratt og mikið. Ég skil íslensku og þetta er að koma," sagði Gunnar léttur.

Hér að ofan má sjá viðtalið við Gunnar í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner