Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. október 2016 18:00
Magnús Már Einarsson
Koeman myndi glaður vilja fá Rooney til Everton
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Everton, segist hafa áhuga á að fá Wayne Rooney til félagsins frá Manchester United.

Hinn 31 árs gamli Rooney er dottinn út úr byrjunarliði Manchester United og orðrómur hefur verið um að hann gæti farið frá félaginu í janúar eða næsta sumar.

Rooney ólst upp hjá Everton og spilaði með liðinu í ensku úrvalsdeildinni áður en hann fór til Manchester United árið 2004.

„Hann er frábær leikmaður. Hann hefur ekki ennþá lokið ferlinum," sagði Koeman.

„Ég veit ekki hvernig staða hans er og það er ekki mitt vandamál. Auðvitað væri ég ánægður ef það væri möguleiki á að fá Rooney til Everton."
Athugasemdir
banner
banner
banner