Borussia Mönchengladbach 0 - 0 Eintracht Frankfurt
Níunda umferð þýsku Bundesligunnar hófst í kvöld með leik Borussia Mönchengladbach og Eintracht Frankfurt á Borussia-Park leikvangnum.
Það er skemmst frá því að segja að ekki var boðið upp á mjög fjörugan fótboltaleik því liðin skildu jöfn og skoruðu ekki eitt einasta mark.
Eintracht Frankfurt missti þar með af tækifæri til að komast upp í þriðja sæti deildarinnar en fór þó upp um eitt sæti og situr nú í sjötta sætinu.
Mönchengladbach er þrem sætum neðar með 12 stig eftir níu leiki.
Athugasemdir