Helmond Sport lagði PSV með tveimur mörkum gegn einu í hollensku fyrstu deildinni í kvöld.
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn er Jong PSV tapaði fyrir Helmond Sport í kvöld en gestirnir í PSV komust yfir áður en heimamenn jöfnuðu á 26. mínútu.
Hjörtur er lykilmaður í liðinu en hann spilar iðulega sem miðvörður með hollenska stórveldinu.
Sigurmark leiksins kom undir lokin en þetta var sjötta tap liðsins í deildinni á þessu tímabili.
Jong PSV er í þrettánda sæti með 17 stig á meðan Helmond Sport er í átjánda með 13 stig.
Athugasemdir