Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea á Englandi, vísar því á bug að Lionel Messi sé á leið til félagsins frá Barcelona næsta sumar.
Messi, sem er 27 ára gamall, gaf sterklega til kynna á dögunum að hann gæti yfirgefið Barcelona á næstu árum en þar sagði hann að hann myndi ekkert endilega enda ferilinn hjá Barcelona.
Argentínski snillingurinn slær met daglega í boltanum en hann er bæði markahæsti leikmaður Meistaradeildar Evrópu frá upphafi og þá er hann einnig markahæsti leikmaður spænsku deildarinnar frá stofnun hennar.
Það var greint frá því á dögunum að Chelsea væri líklegasti áfangastaður Messi en Mourinho vísar því á bug.
,,Mín viðbrögð við þessu er að fjölmiðlaheimurinn hefur breyst mikið og fótboltaheimurinn líka," sagði Mourinho.
,,Það er svo auðvelt að dreifa sögum þar sem enginn sannleikur er í sögunni. Það er svo auðvelt fyrir fólk að búa til fréttir án þess að fá staðfestingu eða tala um orðróminn."
,,Augljóslega er Messi ekki á leið til Chelsea," sagði hann að lokum.
Athugasemdir