Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 28. nóvember 2014 09:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Football Italia 
Prandelli rekinn frá Galatasaray
Var einungis fimm mánuði Tyrklandi
Cesare Prandelli var rekinn.
Cesare Prandelli var rekinn.
Mynd: Getty Images
Galatasaray hefur rekið Cesare Prandelli frá félaginu einungis fimm mánuðum eftir að hann tók við félaginu.

Það var mikil pressa á þessum fyrrum stjóra ítalska landsliðsins á undanförnum vikum, en Galatasaray hefur ekki staðist væntingar í deildinni á tímabilinu. Þá er liðið á botni riðils síns í Meistaradeildinni og hefur fengið á sig 15 mörk í einungis fimm leikjum.

Liðið situr í 3. sæti tyrknesku deildarinnar eftir að hafa legið 3-0 á heimavelli gegn Trabzonspor um helgina.

Búist er við að Brasilíumaðurinn Claudio Taffarel taki við af Prandelli.
Athugasemdir
banner