Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. nóvember 2014 14:00
Magnús Már Einarsson
Real Madrid getur sett met um helgina
Real hefur verið á flugi undanfarnar vikur.
Real hefur verið á flugi undanfarnar vikur.
Mynd: Getty Images
Real Madrid getur slegið félagsmet ef liðið nær að vinna Malaga annað kvöld.

Real Madrid hefur unnið fimmtán leiki í röð í öllum keppnum og ef liðið nær þeim sextánda er það met.

Tímabilið 1960/1961 náði Real Madrid að vinna fimmtán leiki í röð sem og tímabilið 2011/2012 en í bæði skiptin mistókst liðinu að ná sextánda sigrinum.

,,Við undirbúum okkur á sama hátt og vanalega því að við vitum að þetta verður erfiður leikur og við þurfum að spila vel," sagði Carlo Ancelotti þjálfari Real Madrid.

Real Madrid er með tveggja stiga forskot á Barcelona á toppi deildarinnar eftir tólf umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner