Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 28. nóvember 2014 14:51
Magnús Már Einarsson
Rodgers ætlar ekki að taka Mignolet úr liðinu
Balotelli áfram frá keppni
Mignolet og Balotelli fara yfir stöðuna.
Mignolet og Balotelli fara yfir stöðuna.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, segist ekki ætla að taka markvörðinn Simon Mignolet úr byrjunarliðinu.

Mignolet hefur gert sig sekan um nokkur slæm mistök á tímabilinu, síðast í jafnteflinu gegn Ludogorets í Meistaradeildinni í vikunni.

,,Hann er í góðu lagi. Ég átti gott spjall við hann," sagði Rodgers um Belgann.

,,Hann hefur bjargað okkur í mörgum leikjum á tíma mínum hér. Hann er að standa sig vel."

Liverpool mætir Stoke á morgun og verður áfram án framherjanna Mario Balotelli og Daniel Sturridge sem eru meiddir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner