banner
   fös 28. nóvember 2014 21:34
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Alfreð lék mest allan leikinn í fyrsta heimasigri Moyes
David Moyes byrjar vel með Real Sociedad
David Moyes byrjar vel með Real Sociedad
Mynd: Getty Images
Real Sociedad 3 - 0 Elche
1-0 Carlos Vela ('3 )
2-0 Carlos Vela ('31 )
3-0 Carlos Vela ('53 )

Real Sociedad sigraði Elche með þremur mörkum gegn engu í spænsku deildinni en þetta var fyrsti heimaleikur liðsins undir stjórn David Moyes.

Mexíkóski snillingurinn Carlos Vela kom liðinu yfir með skalla eftir einungis 3. mínútur en það dró til tíðinda fyrir íslenska áhugamenn um fótbolta á 9. mínútu er Imanol Agirrexte fór meiddur af velli en Alfreð Finnbogason kom inná í hans stað.

Vela bætti við öðru marki eftir um það bil hálftíma en hann slapp þá í gegn og renndi boltanum framhjá markverði Elche áður en hann fullkomnaði þrennu sína í byrjun síðari hálfleiks með laglegu táarskoti.

Lokatölur 3-0 fyrir Real Sociedad sem er í tólfta sæti með 13 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner