Spænski landsliðsmiðjumaðurinn Koke segir að mögulega sé við ofurefli að etja að ætla að keppa við Barcelona um spænska meistaratitilinn.
Atletico Madrid er í 2.sæti La Liga, fjórum stigum á eftir Barcelona sem hefur verið á mikilli siglingu upp á síðkastið
„Leikmenn Barcelona eru í mjög háum gæðaflokki og það er erfitt að ætla að keppa við þá."
„Þeir eru rosalega sterkir. Við munum taka eitt skref í einu og sjá hvert það skilar okkur í lok tímabils", segir Koke.
Koke verður væntanlega í eldlínunni með Atletico í dag þegar liðið fær Espanyol í heimsókn.
Athugasemdir