Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. nóvember 2015 09:30
Arnar Geir Halldórsson
Monk óttast ekki um starf sitt
Silkislakur
Silkislakur
Mynd: Getty Images
Garry Monk, stjóri Swansea, segir starf sitt ekki vera í hættu þrátt fyrir slæmt gengi undanfarið.

Monk kveðst þvert á móti hafa fullan stuðning frá Huw Jenkins, formanni félagsins, og stjórninni.

„Ég þekki Huw og stjórnina mjög vel. Ég tala reglulega við formanninn. Við tölum saman um frammistöðuna, leikmenn og möguleg leikmannakaup".

„Við viljum allir komast í gegnum þetta og fara að ná í stig. Við höfum rætt um þetta og hann vill sjá bætingu en hann veit hvernig hlutirnir eru. Hann hefur ekki sýnt mér neitt annað en stuðning", segir Monk.

Swansea á verðugt verkefni fyrir höndum á morgun þegar liðið heimsækir Liverpool á Anfield.
Athugasemdir
banner
banner