Adnan Januzaj var lánaður frá Manchester United til Borussia Dortmund í sumar til þess að auka spiltíma sinn.
Hjá Dortmund hefur hann sýnt góðar frammistöður inn á milli, en þrátt fyrir það hefur hann oft á tíðum þurft að verma tréverkið.
Hjá Dortmund hefur hann sýnt góðar frammistöður inn á milli, en þrátt fyrir það hefur hann oft á tíðum þurft að verma tréverkið.
Hann þurfti einmitt að gera það á móti Ragnari Sigurðssyni og félögum í Krasnodar í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.
Í hálfleik fóru svo allir varamennirnir að hita upp, eins og venjan er, en Januzaj fékk ekki neinn liðsfélaga til að hita upp með sér þannig að hann fékk boltastrákinn á vellinum til að halda sér heitum.
Myndband af þessu má sjá hér að neðan.
Athugasemdir