Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. nóvember 2015 17:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pardew: Við vorum ómóstæðilegir í dag
Alan Pardew
Alan Pardew
Mynd: Getty Images
Alan Pardew, stjóri Crystal Palace, var að vonum ánægður eftir 5-1 sigur sinna manna á Newcastle.

Palace lenti undir í leiknum, en Pardew var gríðarlega ánægður með það sem kom eftir markið hjá Newcastle.

"Þetta var slakt mark sem við fengum á okkur, sem er óvanalegt hjá okkur, en hvernig við svöruðum eftir það var ótrúlegt," sagði Pardew eftir leik.

"Við sköpuðum vandamál alls staðar. Connor Wickham gaf þá frammistöðu í dag sem við höfðum verið að vonast eftir. Við vorum hreint út sagt ómótstæðilegir í dag."

"Við erum í sjötta sæti deildarinnar vegna þess að við erum með gott lið, þetta snerist ekki um andstæðinginn í dag. Ég á marga vini og fjölskyldu í Newcastle, en ég vil ekki segja mikið um þá vegna þess að verð gagnrýndur fyrir það sem ég mun segja,"
sagði Pardew að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner