Tveimur leikjum var rétt í þessu að ljúka í spænsku La Liga og tókst Celta Vigo og Deportivo að ná í dýrmæta sigra í toppbaráttunni.
Celta Vigo jafnaði Real Madrid að stigum og er í 4. sætinu eftir 2-1 sigur gegn Sporting Gijon. Það var Nolito sem tryggði Celta stigin þrjú með marki þegar einungis fimm mínútur voru eftir.
Þá vann Deportivo 2-0 útisigur á Kanaríeyjum gegn Las Palmas, þökk sé mörkum frá Cani og Lucas. Deportivo er í 5. sætinu með 21 stig, þremur stigum frá Celta í 4. sætinu.

Las Palmas 0 - 2 Deportivo
0-1 Cani ('19 )
0-2 Lucas ('90 )
Celta 2 - 1 Sporting Gijon
1-0 Fabian Orellana ('15 )
1-1 Carlos Castro ('65 )
2-1 Nolito ('85 )
Athugasemdir