lau 28. nóvember 2015 19:07
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Griezmann kláraði Espanyol
Griezmann hefur lengi verið eftirsóttur af stærstu félögum Evrópu.
Griezmann hefur lengi verið eftirsóttur af stærstu félögum Evrópu.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 1 - 0 Espanyol
1-0 Antoine Griezmann ('3)

Atletico Madrid fékk Espanyol í heimsókn í spænsku efstu deildinni í dag og stjórnaði leiknum frá upphafi til enda.

Hinn gífurlega eftirsótti Antoine Griezmann kom heimamönnum yfir strax á þriðju mínútu, en fyrri hálfleikurinn var einstaklega bragðdaufur og leiðinlegur þar sem hvorugu liði tókst að gera nokkuð af viti.

Síðari hálfleikurinn var mestan partinn leiðinlegur eins og sá fyrri en heimamenn í Atletico tóku við sér undir lok leiks og fengu hvert færið fætur öðru og voru óheppnir að bæta ekki marki við.

Niðurstaðan er sanngjarn sigur Atletico Madrid sem er fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona, en fimm stigum á undan nágrönnunum í Real Madrid sem eiga leik gegn Eibar á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner