Tiago Mendes, betur þekktur sem Tiago, verður líklega frá út tímabilið eftir að hafa brotið sköflung í 1-0 sigri á Espanyol í dag.
Tiago, sem er 34 ára gamall, á yfir 160 deildarleiki að baki fyrir Atletico og hefur skorað í þeim 16 mörk spilandi sem djúpur miðjumaður.
Tiago, sem er 34 ára gamall, á yfir 160 deildarleiki að baki fyrir Atletico og hefur skorað í þeim 16 mörk spilandi sem djúpur miðjumaður.
Tiago þurfti að fara af velli í fyrri hálfleik eftir samstuð við Marco Asensio og var sendur beint á spítala.
„Það kom í ljós úr læknisskoðuninni að Tiago er búinn að brjóta part af hægri sköflungnum sínum."
Tiago hefur verið lykilmaður fyrir Atletico á tímabilinu og ljóst er að hans verður sárt saknað í spænsku toppbaráttunni.
Athugasemdir