Jamie Vardy var rétt í þessu að bæta markamet Ruud van Nistelrooy í ensku deildinni.
Nistelrooy skoraði í tíu leikjum í röð árið 2003 og hefur enginn komist nálægt því að bæta met Hollendingsins síðan, Daniel Sturridge og Emmanuel Adebayor komust næst því þegar þeir skoruðu sjö mörk í röð.

Nistelrooy gerði markametið sem leikmaður Manchester United og því er skemmtilegt að Vardy hafi bætt það einmitt í leik gegn Rauðu djöflunum sem er enn í gangi.
Nistelrooy hefur verið mjög duglegur að tjá sig um velgengni Vardy og alltaf á jákvæðu nótunum, og birti hann mynd á Instagarm með skilaboðum til Vardy skömmu eftir að hann skoraði í dag.
„Vel gert @vardy7! Þú ert númer eitt núna og átt það skilið. #11íröð" skrifaði Nistelrooy á Instagram.
Athugasemdir